Fotbolti.net
Baulað á börum í Belgíu og götur fylltust um miðja nótt

08.07.26

Baulað á börum í Belgíu og götur fylltust um miðja nótt

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Í aðdraganda leiks Bandaríkjanna og Belgíu kom upp gríðarlega umdeilt mál sem fór líklega ekki fram hjá mörgum fótboltaáhugamönnum.

Folarin Balogun, fremsti sóknarmaður Bandaríkjanna, fékk rautt spjald í leik gegn Bosníu og Hersegóvínu og átti samkvæmt reglum að taka út leikbann. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, greip hins vegar inn í með því að nýta tengsl sín við Gianni Infantino, forseta FIFA, og Balogun fékk að spila gegn Belgíu.

Ákvörðunin vakti hörð viðbrögð víða um heim. FIFA og forseti sambandsins hafa verið sökuð um að beygja reglurnar og grafa undan trúverðugleika heimsmeistaramótsins.

Fotbolti.net ræddi við Orra Frey Rúnarsson, fótboltaáhugamann sem býr í Brussel, um stemninguna í Belgíu fyrir leikinn, reiðina sem málið vakti og fögnuðinn eftir leikinn sem endaði með 4-1 sigri Belgíu.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.