Fotbolti.net
08.08.13 - 13:30
Magnús Már Einarsson

James McClean til Wigan (Staðfest)

James McClean til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur keypt kantmanninn James McClean frá Sunderland.

Þessi 24 ára gamli leikmaður kom til Sunderland árið 2011 og sló í gegn ári síðar.

Í kjölfarið gerði hann nýjan langtíma samning við Sunderland.

Eftir að Paolo Di Canio tók við Sunderland af Martin O\'Neill fékk McClean hins vegar fá tækifæri.
McClean er tíundi leikmaðurinn sem Owen Coyle fær til Wigan í sumar en hann gæti spilað sinn fyrsta leik um næstu helgi þegar liðið mætir Manchester United í leik um Samfélagsskjöldinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.