Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. ágúst 2013 14:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Shakhtar kaupir Bernard á 25 milljónir evra (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Shakhtar Donetsk í Úkraínu hefur keypt miðjumanninn Bernard frá Atletico Mineiro á 25 milljónir evra.

Hinn tvítugi Bernard skrifaði undir fimm ára samning við Shakhtar en hann sló í gegn með brasilíska landsliðinu á Álfukeppninni í sumar.

Bernard er 164 cm á hæð en hann var tvívegis látinn fara úr unglingastarfi Atletico Mineiro þar sem hann þótti vera of smávaxinn.

Félagið sá hins vegar að sér og græddi vel á því með því að selja Bernard á háa upphæð.
Athugasemdir
banner
banner
banner