Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 08. ágúst 2022 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Thiago frá í allt að sex vikur
Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara verður frá næstu sex vikurnar vegna meiðsla aftan í læri. James Pearce hjá Athletic segir frá þessu í kvöld.

Thiago meiddist í opnunarleik Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um helgina í 2-2 jafnteflinu gegn Fulham.

Hann fór af velli á 51. mínútu og kom Harvey Elliott inn í hans stað.

Spánverjinn á sér langa meiðslasögu en það er nú útlit fyrir að hann missti af næstu sex vikum vegna meiðsla aftan í læri.

Þetta er mikil blóðtaka fyrir Liverpool sem hefur nú þegar verið í leit að því að styrkja miðjuna.

Plan Liverpool er að kaupa miðjumann á næsta ári en það er spurning hvort það verði ráðist í einhverjar aðgerðir fyrir gluggalok.
Athugasemdir