Fotbolti.net
08.08.23 - 22:21
Haraldur Örn Haraldsson

Raggi Sig: Ég er til í að klára þetta tímabil

Auglýsing
Ragnar á hliðarlínunni í dag.

Ragnar á hliðarlínunni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar Sigurðsson fyrrverandi landsliðsmaður í gullaldarliði landsliðsins stýrði sínum fyrsta leik í kvöld sem aðalþjálfari þegar liðið hans Fram mætti hans gamla liði Fylki.

„Við ætluðum að vinna þennan leik náttúrulega og maður sá hann fyrir sér fara svona þrú-fjögur, núll. Við byrjuðum hann af krafti, byrjuðum hann nákvæmlega eins og við ætluðum okkur, svo ætluðum við bara að halda því áfram en við náðum því ekki alveg. Fylkismenn voru bara sterkir og öflugir í dag og fannst mér vera bara með svipað plan og við. Því lengra sem leið á leikinn þá fannst mér svona aðeins detta úr okkar mönnum en þetta var klárlega eitthvað jákvætt til að byrja að byggja á."

Framarar litu betur út í leiknum en þeir hafa gert upp á síðkastið og Ragnar segir að liðið hefur litið vel út á æfingum.

„Við náðum góðri viku með góðum æfingum, bara upp með andann og allt það. Þannig að eins og ég segi við bara höldum áfram með þetta"

Eins og fram hefur komið þá er þetta fyrsta skipti sem Ragnar tekur við aðalþjálfara starfi. Hann er ráðinn tímabundið eins og er en hann segist vera tilbúinn til að halda áfram.

„Fram-menn þurfa bara að gera það sem þeir þurfa að gera en já ég er klárlega til í að klára þetta tímabil."

Það er nokkuð vel þekkt að Ragnar hafði ekkert sérstaklega mikinn áhuga á fótbolta þegar hann var leikmaður og horfði lítið sem ekkert á fótbolta. Það fannst því mörgum skrítið að hann skildi vera svona fljótur að finna sér starf innan fótboltans eftir að leikmannaferlinum lauk.

„Þetta gerðist bara, og stundum gerast hlutirnir bara hratt og gerast að sjálfu sér og þetta er bara mjög skemmtilegt."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Þar talar Ragnar nánar um leikinn sem var í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.