Fotbolti.net
08.09.18 - 17:14
Mist Rúnarsdóttir

Alexandra: Held að liðsheildin muni skila okkur þessu

Auglýsing
Alexandra var frábær í dag og skoraði tvö mörk í sterkum sigri Blika

Alexandra var frábær í dag og skoraði tvö mörk í sterkum sigri Blika

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Hertz
„Þetta var rosalega sætt. Við vorum rosalega skipulagðar eins og sást. Við leyfðum þeim að koma og sóttum svo í svæðin á bakvið þær og nýttum færin,“ sagði Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður Breiðabliks, sem átti sannkallaðan stjörnuleik þegar Blikar unnu 3-0 sigur á Þór/KA í toppslag Pepsi-deildarinnar.
Alexandra var búin að skora eitt deildarmark í sumar fyrir leikinn í dag en hún bætti um betur og gerði tvö fyrstu mörk Blika í leiknum. Aðspurð svaraði hún ófeimin að hún hefði allt eins átt von á því fyrir leik.

„Ég fer í alla leiki til að skora og vinna þannig að ég ætla bara að segja já, ég bjóst alveg við því.“

Blikar eru með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir og Alexandra er harðákveðin í að klára dæmið og vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.

„Það er engin spurning. Það er búið að vera svoleiðis í allt sumar. Við hugsum samt bara um næsta leik og reynum að fá þrjú stig út úr honum.“

„Við þurfum að halda áfram að vera svona ótrúlega grimmar og sýna svona ótrúlega liðsheild. Mér finnst við ná ótrúlega vel saman og ég held að liðsheildin sé að fara að skila okkur þessu,“
sagði kona leiksins að lokum en hægt er að horfa á viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.