Fotbolti.net
08.09.18 - 18:32
Elvar Geir Magnússon

Birkir Már: Þetta er mikill skellur

Auglýsing
Birkir Már: Þetta er mikill skellur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þetta var frekar lélegt,\" sagði Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður íslenska landsliðsins, eftir 6-0 tap gegn Sviss í Þjóðadeildinni í dag.
„Allt sem gat farið úrskeiðis fór úrskeiðis og þetta er mikill skellur.\"

„Liðið var alveg gírað en það gekk ekki sem við ætluðum að gera og þeir gengu á lagið. Síðan voru þetta domino áhrif.\"

Næsti leikur er strax á þriðjudaginn en þá koma Belgar í heimsókn í Þjóðadeildinni.

„Það er gott að fá leik eins fljótt og hægt er eftir svona skell. Þá getum við lagað það sem fór úrskeiðis og sýnt úr hverju við erum gerðir.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.