banner
   þri 08. september 2020 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hólmbert: Veit ekki af hverju en ég hugsaði bara um að láta vaða
Icelandair
Hólmbert á landsliðsæfingu.
Hólmbert á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði stórglæsilegt mark þegar Ísland tapaði 5-1 gegn Belgíu í Þjóðadeildinni.

Hólmbert kom inn í byrjunarliðið og stóð sig vel.

„Ég sé boltann koma til mín og ég veit ekki af hverju, en ég hugsaði bara um að láta vaða. Maður þarf að skjóta til að skora. Ég er bara feginn að hann fór inn," sagði Hólmbert við Stöð 2 Sport eftir leik.

Hólmbert hafði fengið dauðafæri nokkrum mínútum fyrir markið. „Það sat í mér, þetta var dauðafæri og maður á að skora þarna. En svona fór þetta í dag."

„Við fáum góða byrjun. Við erum lágt á vellinum og erum að reyna að sækja hratt. Þegar við erum að reyna að sækja hratt er lítil orka eftir í fótunum til að keyra á þá. Þeir eru með hörkulið en mörkin sem við fáum á okkur eru slæmt finnst mér. En svona er þetta."

Hér að neðan má sjá mark hans.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner