Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. september 2021 16:56
Elvar Geir Magnússon
Aldrei fleiri sjónvarpsmyndavélar á viðburði á Íslandi
Icelandair
Þýska sjónvarpið með útbúnað.
Þýska sjónvarpið með útbúnað.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á landsleik Íslands og Þýskalands í kvöld verða 42 sjónvarpsmyndavélar en leikurinn verður sérstaklega framleiddur fyrir þýska sjónvarpið auk hinnar hefðbundnu útsendingar.

Vilhjálmur Siggeirsson sem starfar fyrir RÚV á leiknum telur að enginn viðburður í beinni á Íslandi hafi verið myndaður með jafn mörgum vélum.

Á leiknum verða í heild 45 starfsmenn frá RÚV og 80 frá Þýskalandi. Þýsku sjónvarpsmennirnir hafa notið veitinga frá Múlakaffi í félagsheimili Þróttar. Leikurinn verður aðgengilegur í beinni sjónvarpsútsendingu í tæplega 160 löndum víðs vegar um heiminn.

Leikur Íslands og Þýskalands hefst 18:45 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.


Athugasemdir
banner
banner