Jón Dagur: Höldum því inni í klefa

Svekktur Jón Dagur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Svekktur Jón Dagur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

„Þetta var ekki nógu gott, það er frekar einfalt," sagði Jón Dagur Þorsteinsson leikmaður Íslands eftir 3 - 1 tap úti gegn Lúxemborg í undankeppni EM 2024 í kvöld.
„Við vorum bara ekki nógu góðir í báðum teigum vallarins, þá vinnur þú ekki fótboltaleiki," hélt hann áfram en upplifði hann þetta sem andleysi?
„Nei, en þegar maður fær á sig mark svona snemma er það sjokkerandi. Það hafði kannski of mikil áhrif á okkur en ég upplifði það samt ekki. Kannski leit það þannig út að utan," sagði Jón Dagur.
Hann var næst spurður hvernig honum hafi liðið í seinni hálfleiknum fram að 2-0 markinu.
„Mér fannst við vera að pressa þá niður og hefðum átt að spila meira inn í boxið en þegar seinna markið kom og við missum mann útaf er þetta orðið erfitt."
Er eitthvað jákvætt sem þið takið úr þessu?
„Úff, ég veit það ekki svona stuttu eftir leik."
Hvernig var upplifun þín að spila leikinn, fannstu fyrir mótlæti inni á vellinum?
„Nei nei. Eins og ég sagði áðan var sjokk að fá mark á sig snemma eftir nokkrar mínútur. Það hafði kannski of mikil áhrif."
Hver voru fyrstu orðin í klefanum eftir leik?
„Það var lítið sagt en höldum því inni í klefa."
Er vonin að komast uppúr riðilinum farin?
„Það er allavega orðið erfitt."
Hvað þurfið þið að bæta fyrir Bosníuleikinn?
„Vera betri í báðum teigum vallarins og hætta að gera þetta svona erfitt fyrir okkur."


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir



