Fotbolti.net
08.09.26 - 14:46
Kári Snorrason

Langmesta breytingin á gengi Þórs og Breiðabliks

Gyrðir Hrafn í baráttunni við Þorra Ingólfsson, sem er nú á láni frá Víkingi í Þór.

Gyrðir Hrafn í baráttunni við Þorra Ingólfsson, sem er nú á láni frá Víkingi í Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór er það lið í Bestu deildinni sem hefur bætt gengið sitt hvað mest eftir að sumarglugginn opnaði þann 16. júlí.

Liðið sótti að meðaltali 0.6 stig úr hverjum leik fyrir opnun gluggans en frá því að hann opnaði hafa Þórsarar fengið að meðaltali 1.6 stig úr hverjum leik.

Leifur Grímsson vekur athygli á tölfræðinni á X-síðu sinni.

Þórsarar styrktu sig vel með komu Victor Bertomeu, Gyrðis Hrafns Guðbrandssonar, Þorra Ingólfssonar og Kevin Vazquez.

Þá er ÍA með næst mestu bætinguna eftir gluggaopnun þrátt fyrir að liðið hafi ekki styrkt sig verulega í glugganum. Markvörðurinn Jón Sölvi Símonarson kom til liðsins fyrir gluggaopnun á undanþágu frá KSÍ vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar.

Félagið sem hefur staðið sig verst eftir gluggaopnun, samanborið við stigasöfnun liðsins fyrri hluta tímabils, er Breiðablik.

Kópavogsliðið hefur fengið að meðaltali 0.6 stig úr leikjum eftir gluggaopnun og eru Blikar án sigurs í síðustu sex deildarleikjum. Liðið seldi Arnór Gauta Jónsson til Króatíu og í lok síðasta mánaðar fór Ágúst Orri Þorsteinsson til Excelsior.
Lítið gengið hjá Blikum að undanförnu.

Lítið gengið hjá Blikum að undanförnu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.