Fotbolti.net
08.10.26 - 19:18
Brynjar Ingi Erluson

Besti leikmaður NBA-deildarinnar kaupir hlut í Atlético

Besti leikmaður NBA-deildarinnar kaupir hlut í Atlético
Canon

Mynd: EPA

Kanadíski körfuboltamaðurinn Shai Gilgeous-Alexander hefur keypt hlut í Atlético Madríd. Spænska félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni í dag.
Shai er 28 ára og hefur verið valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar tvö ár í röð. Hann varð NBA-meistari í fyrsta sinn á síðasta ári með Oklahoma City Thunder og komst þá í undanúrslit í vor.

Nú hefur hann fjárfest í fótboltanum og er orðinn einn af hluthöfum Atlético Madríd.

„Ég er spenntur að vera formlega kominn í hóp hluthafa Atlético Madríd. Félagið á langa og merka sögu í evrópskum fótbolta og ég er þakklátur fyrir tækifærið til að taka þátt í framtíð þess,“ sagði Gilgeous-Alexander.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.