Fotbolti.net
08.10.26 - 19:27
Brynjar Ingi Erluson

Leikmaður Everton sektaður fyrir brot á veðmálareglum

Leikmaður Everton sektaður fyrir brot á veðmálareglum
Canon

Mynd: Port Vale

Martin Sherif, leikmaður Everton, hefur verið sektaður um fimm þúsund pund fyrir brot á veðmálareglum enska fótboltasambandsins.
Leikmaður Everton ákærður fyrir veðmálabrot
TENGT EFNI

Leikmaður Everton ákærður fyrir veðmálabrot

Hinn tvítugi framherji viðurkenndi að hafa komið að, heimilað eða gert kleift að leggja undir í 61 veðmáli á leiki frá 20. nóvember 2024 til 12. febrúar 2026.

Sherif sagðist ekki hafa veðjað sjálfur og að ekkert veðmálanna hefði verið á leiki sem hann tók þátt í. Hann viðurkenndi þó að hafa fjármagnað veðmálareikninga í eigin nafni.

Óháð nefnd fann Sherif sekan og sektaði hann um fimm þúsund pund, en tók fram að hann hefði sýnt einlæga iðrun.

Sherif er fæddur í Líberíu og gekk til liðs við Everton árið 2019. Hann hóf æfingar með aðalliðinu í fyrra en fór á láni til Port Vale í febrúar. Þar skoraði hann tvö mörk í sautján leikjum er liðið féll um deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.