Fotbolti.net
08.10.26 - 16:10
Elvar Geir Magnússon

Haaland tjáir sig: Brosum, verum jákvæð og stöndum saman

Erling Haaland, markahrókur Manchester City.

Erling Haaland, markahrókur Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland hefur tjáð sig við samfélagsmiðla Manchester City. Hann hvetur stuðningsmenn City að halda áfram að brosa og „njóta ferðarinnar“.

Manchester City er að búa sig undir heimsókn til Liverpool á sunnudag en hópurinn kom í fyrsta sinn saman í morgun eftir að City var dæmt sekt um umfangsmikil fjárhagsbrot.

Það má búast við rafmögnuðu andrúmslofti kringum leikinn á Anfield á sunnudaginn og breskir fjölmiðlar segja að lögreglan verði með sérstakan viðbúnað.
Maresca brosti út að eyrum til ljósmyndara
TENGT EFNI

Maresca brosti út að eyrum til ljósmyndara

„Ég held að aðdáendur City sem ferðast á Anfield muni skemmta sér vel. Við verðum að standa saman. Við verðum að standa hvert með öðru og við verðum að vera jákvæð. Sama hvað gerist í lífinu, við verðum alltaf að hafa bros á vör," segir Haaland.

„Við verðum að standa saman og við verðum að dreifa ástinni hvert til annars. Svo já, haldið saman, njótið ferðarinnar og brosið.“


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.