Fotbolti.net
08.10.26 - 19:54
Brynjar Ingi Erluson

Fjölhæfur varnarmaður framlengir við Barcelona

Fjölhæfur varnarmaður framlengir við Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Xavi Espart, leikmaður Barcelona á Spáni, hefur framlengt samning sinn við félagið til 2030.
Hinn 19 ára gamli Espart hefur staðið sig vel í vinstri bakverðinum hjá Barcelona undir stjórn Hansi Flick. Hann hefur komið að þremur mörkum í fimm leikjum og fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína.

Espart getur einnig spilað stöðu miðjumanns og hægri bakvarðar.

Nú hefur hann skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið.

Espart leikur einnig með U19 ára landsliði Spánar og var valinn í lið mótsins þegar Spánverjar urðu Evrópumeistarar fyrr á árinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.