08.10.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Mér líður eins og ég hafi búið úti í svona sjö ár"
Skrifar frá Rovinj í Króatíu
Auglýsing

Thelma Karen Pálmadóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Thelma Karen í leik með Häcken.

Mynd: Guðmundur Svansson

„Við erum allar mjög spenntar fyrir þessu verkefni. Þetta er mjög mikilvægt og við erum með stórt markmið," sagði Thelma Karen Pálmadóttir, leikmaður Íslands, þegar hún ræddi við Fótbolta.net í Króatíu í dag.
Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru tveir leikir gegn Króatíu í umspilinu fyrir HM. Fyrri leikurinn fer fram í Pula í Króatíu á morgun.

„Við þurfum að gera okkar og þá ættum við að vinna þær," sagði Thelma Karen en Ísland er talsvert fyrir ofan Króatíu á heimslistanum.
Það er mikill draumur að komast á HM sem fer fram í Brasilíu á næsta ári.
„Þegar maður hugsar um HM í Brasilíu, þá gæti það bara ekki verið betra. Við munum gera allt til að komast þangað. Það væri draumur."
Ætla að vinna deildina
Thelma Karen, sem er 18 ára, er búin að vera í landsliðinu í nokkrum verkefnum núna en hún leikur með Häcken í Svíþjóð. Hún hefur átt mjög gott fyrsta tímabil í atvinnumennsku.
„Markmiðið okkar er að vinna deildina og við erum ansi nálægt því. Svo hafa leikirnir í Meistaradeildinni verið skemmtilegir þó við höfum ekki fengið úrslitin með okkur," segir Thelma Karen.
„Mér finnst ótrúlegt að ég sé næstum því búin að búa úti í ár, mér líður eins og ég hafi búið úti í svona sjö ár. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og algjör draumur. Það er allt orðið svo venjulegt og Svíþjóð er eins og heima núna. En ég er ótrúlega spennt að fara svo til Íslands og hitta fjölskyldu og vini."
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.