Fotbolti.net
08.10.26 - 18:44
Brynjar Ingi Erluson

Frederik Schram framlengir við Val út 2029

Frederik Schram framlengir við Val út 2029
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Frederik Schram hefur framlengt samning sinn við Val til loka árs 2029.
Frederik er 31 árs og kom fyrst til Vals árið 2022. Hann varð strax lykilmaður en hélt til Roskilde á síðasta ári. Dvölin þar varð stutt og sneri hann aftur á Hlíðarenda í apríl sama ár.

Samningur hans átti að renna út eftir næsta tímabil en Valsmenn geta nú glaðst yfir því að hann hefur framlengt til þriggja ára.

Frederik hefur leikið 92 deildarleiki og tíu bikarleiki fyrir Val.

Þá hefur hann spilað 7 A-landsleiki og var meðal annars í hópnum sem fór á HM í Rússlandi árið 2018.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.