Fotbolti.net
08.10.26 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Sakna hennar gríðarlega mikið"

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Ingibjörg Sigurðardóttir.

Ingibjörg Sigurðardóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ingibjörg Sigurðardóttir er fjarri góðu gamni í yfirstandandi landsliðsverkefni þar sem hún á von á sínu fyrsta barni.

Ingibjörg er lykilmaður íslenska landsliðsins en hún hefur spilað 86 landsleiki og skorað í þeim þrjú mörk.
Glódís: Hefur setið svolítið lengi í mér
TENGT EFNI

Glódís: Hefur setið svolítið lengi í mér

Hún spilar vanalega við hlið Glódísar Perlu Viggósdóttur, landsliðsfyrirliða, í hjarta varnarinnar en Glódís var spurð út í Ingibjörgu í viðtali í dag.

„Já, ég sakna hennar gríðarlega mikið," sagði Glódís.

„Hún er ekki bara frábær inn á vellinum. Hún er líka frábær vinkona og mikill leiðtogi. Það er skarð eftir hana en ég er viss um að næsti leikmaður er klár að stíga upp og taka við þessu kefli."

„Það er staðan á þessum hóp. Þegar einhver hefur dottið út, þá hefur næsta manneskja verið klár að taka við."

Ísland spilar á morgun við Króatíu í fyrri leik liðanna í umspili um að komast á HM.
Glódís Perla Viggósdóttir.

Glódís Perla Viggósdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.