Fotbolti.net
08.10.26 - 20:41
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Darmian til Bologna (Staðfest)

Darmian til Bologna (Staðfest)
Canon

Mynd: Bologna

Ítalski varnarmaðurinn Matteo Darmian hefur skrifað undir eins árs samning við ítalska félagið Bologna.
Darmian er 36 ára og getur leikið víða í vörninni og á vængnum. Hann varð tvöfaldur meistari með Inter á síðustu leiktíð en fór frá félaginu þegar samningur hans rann út í sumar.

Hann hefur nú fundið sér nýtt lið og skrifaði í dag undir samning við Bologna út tímabilið.

Bologna fær því mikla reynslu í hópinn, en Darmian hefur meðal annars leikið með Manchester United, Torino, Parma og AC Milan. Þá á hann 46 landsleiki fyrir Ítalíu og hefur skorað í þeim tvö mörk.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.