Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   sun 08. desember 2019 19:20
Arnar Helgi Magnússon
England: Úlfarnir ósigraðir í ellefu leikjum í röð
Brighton 2 - 2 Wolves
0-1 Diogo Jota ('28 )
1-1 Neal Maupay ('34 )
2-1 Davy Propper ('36 )
2-2 Diogo Jota ('44 )

Brighton og Wolves skildu jöfn í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en öll mörk leiksins komu á rúmum stundarfjórðungi í fyrri hálfleik.

Diogo Jota kom gestunum á bragðið á 28. mínútu þegar hann setti boltann í netið af stuttu færi eftir undirbúning frá Raul Jimenez. Neal Maupay svaraði fyrir heimamenn einungis sex mínútum síðar en þar var að verki Neal Maupay.

Skömmu síðar var það Davy Pröpper sem kom heimamönnum yfir og það leit allt út fyrir það að Brighton yrði með forskot þegar flautað væri til hálfleiks.

Diogo Jota kom í veg fyrir það þegar hann skoraði annað mark sitt og annað mark Úlfanna á 44. mínútu. Staðan því 2-2 þegar flautað var til hálfleiks.

Síðari hálfleikur var ekki jafn mikil skemmtun og sá fyrri og fór það svo að leiknum lauk með 2-2 jafntefli.

Úlfarnir hafa nú leikið 11 leiki í ensku úrvalsdeildinni í röð án þess að tapa. Liðið situr í sjötta sæti deildarinnar með 24 stig, jafn mörg og Manchester United. Brighton er um miðja deild með nítján stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Sunderland 24 9 9 6 27 26 +1 36
9 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
10 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
11 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 24 3 6 15 25 47 -22 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner