Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 08. desember 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Liverpool er lið sem öllum langar að spila fyrir"
Gabriel Barbosa, eða Gabigol eins og hann er kallaður.
Gabriel Barbosa, eða Gabigol eins og hann er kallaður.
Mynd: Getty Images
Gabriel Barbosa væri til í að spila með landa sínum, Roberto Firmino, hjá Liverpool.

Barbosa, eða Gabigol eins og hann er kallaður, hefur leikið með Firmino í brasilíska landsliðinu, en hann væri einnig til í að vera samherji hans hjá Liverpool.

„Firmino er frábær. Hann hefur náð góðum árangri í mörg ár í Evrópu. Hann er kraftmikill framherji sem hefur verið frábær með brasilíska landsliðinu. Ég lít upp til hans," sagði Gabigol við ítalska fjölmiðla, en Liverpool Echo segir frá.

„Það væri mjög gaman að spila með honum. Kannski gætum við spila saman með Brasilíu og Liverpool er lið sem öllum langar að spila fyrir."

Hinn 23 ára gamli Gabigol hefur verið magnaður með Flamengo á láni frá Inter. Hann skoraði 34 mark í 40 leikjum á þessu tímabili og hjálpaði liðinu að vinna deildina og Copa Libertadores, Meistaradeildina í Suður-Ameríku.

Hann náði ekki að sýna sínar bestu hliðar hjá Inter og Benfica áður en hann fór til Flamengo á láni. Talið er að hann vilji reyna að sanna sig í Evrópu.

Það er möguleiki á því að Liverpool og Flamengo muni mætast síðar í þessum mánuði á HM félagsliða í Katar. Liverpool vann Meistaradeild Evrópu og Flamengo vann eins og áður segir Meistaradeildina í Suður-Ameríku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner