Fotbolti.net
10.09.26 - 21:42
Brynjar Ingi Erluson

Carrick segir sjálfstraustið til staðar - „Það hafa sést góð merki“

Michael Carrick

Michael Carrick

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í 4-0 sigrinum á Sabah í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur

United skoraði fjögur mörk og hélt hreinu en Carrick sagði sigurinn ekki hafa verið jafn auðveldan og lokatölurnar gáfu til kynna.

„Það er gott að halda hreinu og á köflum var sóknarleikurinn stórkostlegur, sérstaklega í skyndisóknum, auk þess sem við vörðumst mjög vel lengst af.“

„Ég verð að hrósa þeim því þetta er erfitt lið að spila gegn, þeir spila stuttar sendingar og gera okkur erfitt fyrir að vinna boltann til baka.“

„Af úrslitunum að dæma mætti halda að þetta hefði verið auðvelt og þægilegt en það var ekki alltaf þannig, þó við höfum gert margt vel í kvöld sem skilaði þessum góða sigri.“

„Úrslitin hafa ekki verið fullkomin í upphafi tímabils en það hafa sést góð merki og við sýndum það í kvöld,“
sagði Carrick.

Næst tekur United á móti Manchester City á sunnudag og Carrick segir sjálfstraustið til staðar fyrir nágrannaslaginn.

„Sjálfstraustið er til staðar og það sást á því hvernig við spiluðum gegn Everton á löngum köflum. Það er alltaf gott að vinna og það var mikilvægt að vinna fyrsta leikinn hér heima, en nú bíður okkar annar stórleikur á sunnudag,“ sagði Carrick.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.