
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net ætla Þórsarar að bjóða Je-Wook Woo samning.
Woo skoraði fjögur mörk fyrir Þór í stórsigri á KA 2 í Kjarnafæðimótinu um helgina.
Woo er 27 ára gamall suður-kóreskur sóknarmaður sem hefur verið á reynslu hjá Þór.
Woo skoraði fjögur mörk fyrir Þór í stórsigri á KA 2 í Kjarnafæðimótinu um helgina.
Woo er 27 ára gamall suður-kóreskur sóknarmaður sem hefur verið á reynslu hjá Þór.
Þórsarar eru í framherjaleit því Alvaro Montejo yfirgaf félagið í júní og Jóhann Helgi Hannesson lagði skóna á hilluna.
Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs, starfaði sem yfirmaður fótboltamála í Hong Kong og nýtti sér sambönd í Asíu til að fá Woo á reynslu.
Athugasemdir