Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 09. janúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Markahæsti leikmaður heims í fyrra til Aston Villa?
Mynd: Twitter
Einhverjar sögusagnir eru í gangi um það að framherji Al Nasr, Abderrazak Hamdallah, sé á leið til Aston Villa.

Sagan segir að leikmaðurinn verði opinberlega kynntur hjá félaginu þann 17. janúar. Hvorki Villa né Al Nasr hafa staðfest þessa slúðursögu en breski umboðsmaðurinn John Harriott vill meina að þetta sé klárt.

„Hamdallah til Aston Villa er umtalað í Sádí Arabí. Ég er ánægður með að hafa sagt fyrstur frá," skrifaði Harriott á Twitter.

Hamdallah var markahæsti leikmaður heism á síðasta ári en hann skoraði 57 mörk í 54 leikjum. Hann var valinn besti leikmaður Arabíu á síðasta ári. Hamdallah er 29 ára gamall og kemur frá Morokkó.
Athugasemdir
banner
banner