PSG 3-0 Brest
1-0 Moise Kean ('16)
2-0 Mauro Icardi ('81)
3-0 Pablo Sarabia ('83)
Mauricio Pochettino tók við PSG á dögunum og hann var að stýra sínum öðrum leik með liðið í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
1-0 Moise Kean ('16)
2-0 Mauro Icardi ('81)
3-0 Pablo Sarabia ('83)
Mauricio Pochettino tók við PSG á dögunum og hann var að stýra sínum öðrum leik með liðið í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
Honum tókst ekki að sigra fyrsta leikinn en hann endaði 1-1 gegn Saint Etienne á miðvikudaginn síðasta.
Annað var uppi á teningnum í dag en liðið fékk þá Brest í heimsókn og átti ekki í neinum vandræðum með leikinn.
Moise Kean heldur áfram að spila vel í Frakklandi og hann skoraði fyrsta markið á 16. mínútu leiksins og staðan var því 1-0 þegar dómari leiksins hleypti mönnum í pásu.
Staðan var 1-0 framan af en heimamenn kláruðu síðan leikinn með tveimur mörkum seint í leiknum. Mauro Icardi skoraði á 81. mínútu eftir undirbúning frá Kylian Mbappe.
Tveimur mínútum síðar lagði Icardi upp mark á Pablo Sarabia og því öruggur sigur PSG staðreynd. PSG er í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Lyon sem gerði 2-2 jafntefli gegn Rennes í kvöld.
Athugasemdir