09.01.21 - 21:20
Aksentije Milisic
Myndband: Snyrtilegt aukaspyrnumark hjá Messi

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lionel Messi var í stuði þegar Barcelona heimsótti Granada fyrr í dag í La Liga deildinni á Spáni.
Messi og Antoine Griezmann gerðu báðir tvennu í leiknum sem lauk með öruggum 4-0 sigri Börsunga.
Síðara mark Messi kom eftir aukaspyrnu og var það einkar snyrtilegt. Heimamenn stilltu upp varnarvegg með einn leikmann liggjandi bakvið vegginn eins og svo mörg önnur lið gera í dag.
Messi lét það ekki stoppa sig og skaut boltanum meðfram jörðinni, framhjá varnarveggnum og í bláhornið. Fallegt skot sem fór í gegnum allan pakkann.
Messi hefur byrjaði nýja árið af krafti og vonandi fyrir stuðningsmenn Barcelona að hann verði áfram í þessum gír. Markið má sjá hérna.