KA og Breiðablik voru í eldlínunni í æfingaleikjum í Evrópu í dag.
Breiðablik er statt í Portúgal þessa dagana en liðið vann B-lið Brentford á dögunum.
Blikar mættu sænska liðinu Elfsborg í dag en Sveinn Aron Guðjohnsen fyrrum leikmaður Kópavogsliðsins kom Elfsborg yfir eftir stundarfjórðung.
Elfsborg komst í 2-0 áður en Alexander Helgi Sigurðarson klóraði í bakkann fyrir Breiðablik 2-1 lokatölur.
KA er á Spáni en liðið mætti sænska liðinu Öster. Rúnar Þór Sigurgeirsson, fyrrum leikmaður Keflavíkur, Alex Þór Hauksson fyrrum leikmaður Stjörnunnar og Sebastian Hedlund fyrrum leikmaður Vals leika með liðinu.
1-1 urðu lokatölur en Ívar Örn Árnason skoraði mark KA eftir hornspyrnu.
Athugasemdir