Lionel Messi gerir allt fyrir lið Barcelona að sögn framherjans Karim Benzema sem leikur með Real Madrid.
Messi verður í eldlínunni um helgina þegar Börsungar mæta einmitt Real í El Clasico á Santiago Bernabeu.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið sem eru í öðru og þriðja sæti á eftir Atletico Madrid.
Atletico er fyrir helgina með 66 stig á toppnum en þar á eftir kemur Barcelona með 65 og svo Real með 63.
Benzema veit af hæfileikum Messi sem hefur gert ótrúlega hluti með Barcelona í mörg ár.
„Þeir eru alltaf mikið með boltann, þeir eru með góðan markvörð og svo Messi sem gerir allt fyrir liðið," sagði Benzema.
„Við þurfum að passa okkur verulega því hann er stórhættulegur leikmaður."
Athugasemdir