Manchester City fylgist vel með gangi mála hjá miðjumanninum Yangel Herrera sem leikur nú með Granada á Spáni.
Þessi 22 ára gamli leikmaður er í láni hjá Granada sem spilaði við Manchester United í Evrópudeildinni á fimmtudag og tapaði 0-2.
Herrera er samningsbundinn Man City en hann kom til félagsins frá Atletico Venezuela fyrir fimm árum.
Herrera hefur staðið sig afar vel með Granada en hann samdi við félagið árið 2019 og á að baki 68 leiki.
Man City skoðar það að taka Herrera inn í leikmannahópinn á næstu leiktíð en hann spilar aftarlega á miðjunni.
Leikmaðurinn hefur einnig spilað fyrir New York City og Heuesca á láni og er landsliðsmaður Venesúela.
Athugasemdir