Xhaka eyðilagði fyrir Arsenal - „Þetta var heimskulegt“

Granit Xhaka og Trent Alexander-Arnold í umræddu atviki

Mynd: Getty Images

Granit Xhaka, miðjumaður Arsenal, er sá sem kom með ringulreið inn í leik liðsins við Liverpool og hjálpaði þar með heimamönnum að komast aftur inn í leikinn en þetta sagði Jamie Carragher, sparkspekingur Sky Sports, eftir 2-2 jafnteflið á Anfield.
Xhaka fór í óþarfa tæklingu á Trent Alexander-Arnold seint í fyrri hálfleiknum og var enski landsliðsmaðurinn ekki sáttur og gekk að honum.
Það kom heldur betur líf í leikinn eftir þetta og vöknuðu áhorfendur almennilega. Liverpool fann neistann og kom með mikla baráttu inn í síðari hálfleiknum sem færði þeim stig.
„Það hljómar rosalega kjánalegt að segja þetta en ég er ánægður að Xhaka gerði þetta. Ég er samt reiður út í hann. Hvað ertu að gera? Þetta er svo heimskt. Leikurinn er í ykkar höndum og bara til hvers að gera þetta? Þetta kveikir í áhorendum og ótrúlega heimskulegt af honum að gera þetta.“
„Hann hefur verið frábær á þessu tímabili og spilað aðeins ofar í öðruvísi hlutverki. Xhaka hefur haft svakaleg áhrif á þetta lið en þarna fór hann í sitt gamla far.“
„Það var aðeins ein leið fyrir Liverpool að komast aftur inn í þennan leik og það var þarna með hjálp áhorfenda,“ sagði Carragher.