Búið er að fresta leik KFG og Tindastóls sem átti að fara fram í dag í Garðabæ.
Hópsmit greindist á Skagafirði rétt fyrir helgi og því hefur verið ákveðið að fresta þessum leik sem átti að fara fram kl. 13.
Þessi leikur átti að vera sá síðasti í fyrstu umferð 3. deildarinnar en nú er ljóst að hann fer ekki fram en óljóst er á hvaða dagsetningu leikurinn verður settur.
Tindastóll á að eiga heimaleik gegn Hetti/Huginn á fimmtudaginn næstkomandi en ljóst er að það gæti þurft færa þann leik einnig til.
Fyrsti leikur KFG í sumar verður því gegn Einherja á Vopnafjarðarvelli um næstu helgi.
Athugasemdir