Fotbolti.net
09.05.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Eriksen og Schmeichel fá skaðabætur frá bet365

Eriksen og Schmeichel fá skaðabætur frá bet365
Canon

Mynd: Getty Images

Danskir dómstólar eru búnir að dæma í skaðabótamáli sem danskir íþróttamenn höfðuðu gegn veðmálafyrirtækinu bet365.

Veðmálafyrirtækið notaði ímyndarrétt íþróttamannanna í leyfisleysi og voru nokkrar fótboltastjörnur þar á meðal.

Christian Eriksen, Simon Kjær og Kasper Schmeichel eru meðal þeirra sem fá skaðabætur frá fyrirtækinu.

Skaðabæturnar eru þó ekki háar, heldur nema þær eingöngu um 650 þúsund evrum í heildina. Eriksen er sá íþróttamaður sem fær hæstar skaðabætur, eða um 200 þúsund evrur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.