Fotbolti.net
09.06.13 - 08:38
Hafliði Breiðfjörð

Luis Enrique tekur við Celta Vigo (Staðfest)

Luis Enrique.

Luis Enrique.

Canon

Mynd: Getty Images

Celta Vigo hefur ráðið Luis Enrique til að þjálfa liðið næstu tvö árin en hann tekur við af Abel Resino sem hætti í gær.
Spænska félagið tilkynnti um ráðninguna á Enrique í gær, nokkrum klukkustundum eftir að það tilkynti að Resino væri hættur.

Enrique ser fyrrverandi miðjumaður Barcelona, Real Madrid og Sporting Gijon.

Hann stýrði Roma tímabilið 2011-2012 og endaði í sjöunda sæti ítölsku deildarinnar með liðið.

Hann hafði áður þjálfað B-lið Barcelona frá 2008-2011. Celta slapp við fall í lokaumferð spænsku deildarinnar.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.