Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 16:37
Elvar Geir Magnússon
Atalanta lætur Palladino fara til að fá inn Sarri
Maurizio Sarri með rettu.
Maurizio Sarri með rettu.
Mynd: EPA
Ítalska félagið Atalanta hefur látið Raffaele Palladino taka pokann sinn eftir aðeins 39 leiki við stjórnvölinn.

Palladino var ráðinn 11. nóvember 2025 þegar hann tók við eftir að Ivan Juric var rekinn,

Undir stjórn Palladino náði Atalanta að þokast upp töfluna og endaði í sjötta sæti, sem tryggir Sambandsdeildarfótbolta fyrir næsta tímabil.

Þá komst liðið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar, þar sem það tapaði gegn Bayern München, og í undanúrslit ítalska bikarsins þar sem það beið lægri hlut fyrir Lazio.

En þrátt fyrir þetta fína gengi þá hefur Atalanta ákveðið að láta Palladino fara til að geta ráðið inn Sarri, sem lét af störfum hjá Lazio eftir nýliðið tímabil.

Áður stýrði Sarri liðum Napoli, Chelsea og Juventus.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner
banner