Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U19 strákarnir skoruðu tvö mörk í uppbótartíma og verða í A deild
Byrjunarliðið í dag.
Byrjunarliðið í dag.
Mynd: KSÍ
Georgía 2 - 3 Ísland
0-1 Sigurður Breki Kárason ('52)
1-1 Andria Bartishvili ('85)
1-2 Alexander Ingi Arnarsson ('90+4)
2-2 Saba Kharebashvili ('90+6)
2-3 Gabríel Snær Gunnarsson ('90+8)

Íslenska U19 ára landsliðið mætti Georgíu í Svartfjallalandi í dag. Leikurinn var liður í undankeppni EM 2027. Ísland var með eitt stig eftir jafntefli við Svartfjallaland í fyrsta leik og ljóst að sigur kæmi liðinu í A deild undankeppninnar.

Leikurinn í dag vannst á dramatískan hátt því þrjú mörk voru skoruð í uppbótartíma og þar af tvö af íslensku strákunum. Þeir Sigurður Breki Kárason, Alexander Ingi Arnarsson og Gabríel Snær Gunnarsson skoruðu mörk Íslands í leiknum. Mark Gabríels var síðasta spyrna leiksins.

Ísland endar því riðilinn í efsta sæti og verður A deild undankeppninnar í næstu umferð, en dregið verður í hana 15. júní.


Slapp
banner