Fotbolti.net
09.07.21 - 22:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gaui Þórðar: Gáfum eftir þegar við buðum upp í dans

Auglýsing
Guðjón Þórðarson, þjálfari Ólsara.

Guðjón Þórðarson, þjálfari Ólsara.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Leikurinn fór ágætlega í mig," sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari Víkings Ólafsvíkur, eftir 2-2 jafntefli gegn Grindavík á heimavelli í kvöld.

Ólsarar voru hársbreidd frá sínum fyrsta sigri í sumar en á endanum þurftu þeir bara að sætta sig við eitt stig.
„Við fengum á okkur þungbæran dóm í fyrri hálfleik þar sem við fengum á okkur víti. Við hefðum kannski getað gert betur varnarlega áður en kom til þess. Við sýndum karakter og komum sterkir inn í seinni hálfleikinn."

„Mér fannst við gefa eftir þegar við buðum þeim upp í dans í restina. Við hefðum getað gert betur í að verja forystuna, en svona er lífið. Við þurfum að læra af þessu og taka það jákvæða úr þessum leik - sem var margt og mikið."

„Ég held að Grindvíkingar megi prísa sig sæla að fara þó með það sem þeir fóru með."

Hægt er að horfa á allt viðtalið hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.