Alfreð Elías: Hefðum átt að skora fleiri
Auglýsing

Alfreð Elías Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð Elías Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík bar sigurorð af Gróttu í 11.umferð Lengjudeildarinnar í Grindavík í dag en lokatölur urðu 3-1 Grindavík í vil. Eftir erfitt tap í miðri viku gegn HK var þjálfari liðsins Alfreð Elías Jóhannsson eflaust ánægður með svar sinna leikmanna inn á vellinum.
„Já það var erfitt og svekkjandi tap fyrir okkur, við ræddum þau mál og komum inn í þennan leik og fannst mér við bara spila nokkuð vel.“
Grindavík fór inn til hálfleiks með eins marks forystu eftir að hafa leikið með vindinum í fyrri hálfleik. Með vindinn í fangið í þeim síðari tók það liðið aðeins rúma mínútu að bæta við marki og slökkti það nokkuð í liði gestanna.
„Viktor með frábæra fyrirgjöf, eina af mörgum í þessum leik. Við ákváðum líka að falla ekki niður með liðið og halda pressunni á þeim og mér fannst það takast mjög vel og við hefðum átt að skora fleiri í þessum leik.“
Hópurinn hjá Grindavík er heldur farinn að þynnast og voru til að mynda aðeins fimm varamenn á bekk Grindavíkur í dag. Stafar það meðal annars af meiðslum auk þess sem Argentínumaðurinn Thiago Dylan Ceijas er farinn frá félaginu. Var erfitt að missa hann?
„Já það var mjög erfitt, hann er frábær drengur en átti bara mjög erfitt hérna á Íslandinu fagra og var með mikla heimþrá. Maður er búinn að reyna ýmislegt síðustu þrjár vikur til þess að halda honum en það gekk ekki.“
Sagði Alfreð en allt viðtalið má sjá hér að ofan þar sem hann meðal annars ræðir kvennalandsliðið og möguleika þess á EM en fyrsti leikur liðsins er á morgun gegn liði Belga.