HM-fari klár í slaginn fyrir leikina gegn Víkingi

Benboulani fagnar marki sínu gegn Jórdaníu.

Mynd: EPA

Benbouali í leik með Györ á síðsutu leiktíð.

Mynd: EPA

Benboulani fagnar marki sínu gegn Jórdaníu.

Mynd: EPA
Nadhir Benbouali er alsírskur kantmaður sem var í leikmannahópi Alsíringa á HM þar sem þeir töpuðu nýverið fyrir Sviss í 32-liða úrslitum. Hann tók þátt í einum leik á mótinu en þá kom hann inn á í hálfleik gegn Jórdaníu og skoraði jöfnunarmark Alsírs í 1-2 endurkomusigri. Benbouali var ónotaður varamaður í leikjum liðsins gegn Argentínu og Austurríki en var ekki í leikmannahópi liðsins gegn Sviss af taktískum ástæðum.
Nadhir Bendbouali er leikmaður ETO Györ, mótherjum Víkings í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Hann skoraði 15 mörk og gerði fjórar stoðsendingar á síðastliðnu tímabili með Györ en hann er talinn vera besti leikmaður liðsins og sá eini sem tók þátt á HM í ár.
Hann hefur verið valinn í Evrópuhóp samkvæmt UEFA og verður því að öllum líkindum inni á vellinum í Víkinni næstkomandi þriðjudag þegar fyrri leikur einvígisins verður spilaður. Þar sem hann spilaði einungis 45 mínútur á mótinu má gera fastlega ráð fyrir honum í byrjunarliði gestanna en Víkingar höfðu einmitt tjáð sig um málið fyrir stuttu síðan.

Víkingar halda með Alsír á HM
Óskar Borgþórsson var þá í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag og sagði frá því að umræðan í klefanum væri sú að ef Alsír færi upp úr riðlinum, sem þeir gerðu svo, myndi Benbouali mögulega missa af leiknum. Hann er engu að síður í leikmannahópnum fyrir komandi einvígi og verður fróðlegt að sjá hvort hann muni valda Víkingum miklum erfiðleikum.
Fyrri leikur Víkings gegn Györ fer fram á þriðjudaginn 7. júlí á Víkingsvelli en sá síðari fer fram viku síðar í Györ.

Benbouali í leik með Györ á síðsutu leiktíð.

Mynd: EPA




