Fotbolti.net
09.07.22 - 10:45
Brynjar Ingi Erluson

Atli Dagur og Helgi Snær í Þrótt V. (Staðfest)

Atli Dagur og Helgi Snær í Þrótt V. (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur V.

Atli Dagur Ásmundsson og Helgi Snær Agnarsson eru gengnir til liðs við Þrótt Vogum í Lengjudeild karla en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Atli er 23 ára gamall miðjumaður sem kemur frá Ægi en hann spilaði ellefu leiki í deild- og bikar og gerði eitt mark fyrir liðið á þessu tímabili.

Hann hefur einnig spilað fyrir Álftanes, Leikni F. og KFG, en þetta er góð viðbót við hópinn fyrir komandi átök í fallbaráttu Lengjudeildarinnar.

Þá er Helgi Snær mættur en hann fékk samningi sínum við ÍR rift á dögunum.

Helgi er 23 ára gamall miðjumaður og getur leyst flestar allar stöður á vellinum. Hann á að baki 95 leiki í deild- og bikar og hefur spilað fyrir Magna, Einherja, Fjölni og Vængi Júpiters.

Þróttur er í neðsta sæti Lengjudeildarinnar með tvö stig eftir níu leiki.
Atli Dagur og Helgi Snær í Þrótt V. (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur V.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.