09.07.22 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Bellamy verður aðstoðarmaður Kompany hjá Burnley (Staðfest)

Craig Bellamy og Vincent Kompany munu vinna saman á nýjan leik

Mynd: Getty Images

Vincent Kompany, nýráðinn stjóri enska B-deildarfélagsins Burnley, hefur valið sér aðstoðarmann fyrir næstu ár en góðvinur hans, Craig Bellamy, tekur við starfinu.
Bellamy og Kompany spiluðu saman hjá Manchester City en báðir fóru út í þjálfun eftir ferilinn.
Kompany tók við Anderlecht fyrir þremur árum og fékk hann Bellamy til að þjálfa U21 árs liðið ásamt því að vera aðstoðarþjálfari hans hjá aðalliðinu.
Bellamy neyddist til að hætta í september á síðasta ári vegna andlegra veikinda en bataferli hans virðist ganga vel þar sem hann hefur ákveðið að starfa aftur með Kompany.
Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta ári en Sean Dyche var látinn fara undir lok tímabils og stýrði Michael Jackson liðinu út leiktíðina áður en Kompany var gerður að stjóra.