Fotbolti.net
09.07.22 - 10:05
Brynjar Ingi Erluson

Brentford kaupir Hickey frá Bologna (Staðfest)

Aaron Hickey er mættur til Brenftord

Aaron Hickey er mættur til Brenftord

Canon

Mynd: Brentford

Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford hefur gengið frá kaupum á skoska vinstri bakverðinum Aaron Hickey en hann kemur frá Bologna fyrir 14 milljónir punda.
Hickey er tvítugur og hefur spilað fyrir Bologna síðustu tvö árin en hann kom til ítalska félagsins frá Hearts í Skotlandi.

Skotinn hefur spilað frábærlega á þessum tveimur árum og ná að festa sig í sessi í byrjunarliðinu undir stjórn Sinisa Mihajlovic.

Hann er nú mættur til Englands en hann skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Brenftord og er kaupverðið 14 milljónir punda en það getur hækkað um fjórar milljónir ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

Þetta eru fyrstu kaup Brentford í sumarglugganum en liðið er að fara inn í sitt annað tímabil í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa komist upp á síðasta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.