09.07.22 - 09:07
Brynjar Ingi Erluson
Hörður Björgvin til Panathinaikos (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Panathinaikos

Mynd: Heimasíða Panathinaikos
Íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon skrifaði í dag undir tveggja ára samning við gríska félagið Panathinaikos en hann kmeur á frjálsri sölu.
Hörður yfir gaf CSKA Moskvu á dögunum eftir að samningur hans við rússneska félagið rann sitt skeið en hann eyddi fjórum árum þar og vann einn bikar.
Varnarmaðurinn stóri og stæðilegi hefur nú fundið sér nýtt félag en hann skrifaði undir tveggja ára samning við annað sigursælasta lið Grikklands. Þetta er sjöunda félagið sem hann spilar fyrir á eftir Fram, Juventus, Spezia, Cesena Bristol City og auðvitað CSKA.
Gríska félagið sýndi Herði áhuga í síðasta mánuði og lagði í kjölfarið fram samningstilboð sem leikmaðurinn samþykkti. CSKA, hans gamla félag, lagði einnig fram tilboð, en Hörður ákvað að velja Panathinaikos fram yfir rússneska félagið.
Hörður, sem er 29 ára, hélt út til Austurríkis í gær og gekkst undir læknisskoðun áður en hann skrifaði undir til 2024.
Panathinaikos hafnaði í 4. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og vann þá bikarinn í nítjánda sinn í sögunni.
Hann verður annar Íslendingurinn til að spila fyrir Panathinaikos á eftir Helga Sigurðssyni sem lék fyrir liðið frá 1999-2001.