Joe Aribo kominn til Southampton (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Miðjumaðurinn öflugi Joe Aribo er búinn að kveðja liðsfélagana sína hjá Rangers og er Southampton búið að staðfesta hann sem nýjan leikmann félagsins.
Hjá Southampton fær hann að reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni sem hefur alltaf verið draumur.
Aribo er 25 ára gamall og borgar Southampton aðeins 10 milljónir fyrir leikmanninn sem átti eitt ár eftir af samningnum í Skotlandi.
Aribo skoraði 8 mörk og lagði 6 upp í 31 deildarleik á síðustu leiktíð, auk þess að fara með Rangers alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Aribo er miðjumaður að upplagi en getur einnig leikið á hægri kanti og sem fölsk nía. Giovanni van Bronckhorst hefur mikið verið að nota Aribo sem falska níu að undanförnu.
Það verður spennandi að fylgjast með Aribo í deild þeirra bestu, þar sem hann hefur aldrei spilað áður.
Hann spilaði í ensku C-deildinni með Charlton og skoraði 14 mörk í 62 leikjum á síðustu tveimur árunum áður en hann rann út á samningi og skipti loks til Rangers.
Aribo verður 26 ára seinna í júlí og á 20 landsleiki að baki fyrir Nígeríu.


Mynd: Getty Images
