Fotbolti.net
09.07.22 - 11:28
Brynjar Ingi Erluson

María Catharina aftur í Þór/KA (Staðfest)

María er mætt heim.

María er mætt heim.

Canon

Mynd: Þór/KA

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur fengið til sín Maríu Catharinu Ólafsdóttur Gros aftur til félagsins frá Celtic í Skotlandi. Félagið tilkynnir þetta á heimasíðu sinni í dag.
María er uppalin í Þór/KA og steig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins fyrir fjórum árum er hún var fimmtán ára gömul.

Hún á að baki 58 leiki í meistaraflokki og níu mörk, flestir með Þór/KA, en hún eyddi hluta af sumrinu 2019 á láni hjá Hömrunum.

María yfirgaf Þór/KA síðasta sumar og gekk í raðir Celtic í Skotlandi þar sem hún spilaði 26 leiki og skoraði 5 mörk áður en hún rifti samningi sínum við félagið að tímabilinu loknu.

Þór/KA tilkynnti svo í dag að María væri mætt aftur heim til félagsins og gildir samningur hennar út 2023.

María á 29 landsleiki og 3 mörk fyrir yngri landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.