Fotbolti.net
09.07.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

MIðvörður Hellas Verona til Lazio (Staðfest)

Nicolo Casale fór í læknisskoðun hjá Lazio í gær áður en hann skrifaði undir

Nicolo Casale fór í læknisskoðun hjá Lazio í gær áður en hann skrifaði undir

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski varnarmaðurinn Nicolo Casale er genginn í raðir Lazio frá Hellas Verona.
Casale er 24 ára gamall og spilar sem miðvörður, en hann lék 36 leiki fyrir Verona á síðustu leiktíð.

Hann hefur einnig spilað með Empoli, Venezia, Patro, Perugia og Sudtirol á láni frá Verona.

Lazio hefur nú fest kaup á varnarmanninum öfluga og gerði hann fimm ára samning í gær.

Casale á tvo leiki að baki fyrir U21 árs landslið Ítalíu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.