09.07.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Reina snýr aftur til Spánar - Gerði eins árs samning við Villarreal (Staðfest)

Pepe Reina

Mynd: Getty Images

Pepe Reina

Mynd: Getty Images
Spænski markvörðurinn Pepe Reina er kominn aftur heim til Spánar eftir sautján ára ferðalag en hann gerði eins árs samning við félagið í dag.
Reina, sem er uppalinn hjá Barcelona, gekk til liðs við Villarreal árið 2002 og spilaði með liðinu í þrjú ár áður en hann var keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool.
Síðan þá hefur hann komið víða við en hann spilaði með félögum á borð við Napoli, Milan, Aston Villa, Bayern Müncen og nú síðast Lazio.
Reina yfirgaf Lazio á dögunum og skrifaði í dag undir eins árs samning við Villarreal og er því mættur aftur heim eftir sautján ára ferðalag.

💛 @PReina25 𝗶𝘀 𝗿𝗲𝗮𝗱𝘆 💛
— Villarreal CF English (@VillarrealCFen) July 8, 2022
Medical complete ✅
Meeting José Manuel Llaneza ✅
Meeting the 'presi' ✅
Signing his contract ✍ ✅ pic.twitter.com/Zm7Myfd09D