Fotbolti.net
09.07.22 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Sevilla að kaupa Marcao (Staðfest)

Sevilla að kaupa Marcao (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sevilla er búið að staðfesta að samkomulag hefur náðst við Galatasaray um félagaskipti brasilíska varnarmannsins Marcao.

Sevilla borgar 12 milljónir evra auk 3 milljóna í aukagreiðslur til að festa kaup á þessum 26 ára miðverði.

Galatasaray samþykkti einnig tilboð frá Zenit sem hljóðaði upp á 15 milljónir evra en Marcao fór ekki einu sinni í viðræður við rússneska félagið því hann vildi bara Sevilla.

Marcao hefur verið lykilmaður í hjarta varnarinnar hjá Galatasaray undanfarin þrjú ár en þar áður lék hann í portúgalska og brasilíska boltanum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.