Fotbolti.net
09.07.22 - 15:05
Ívan Guðjón Baldursson

Tottenham gæti fengið 10 milljónir fyrir Jack Clarke (Staðfest)

Tottenham gæti fengið 10 milljónir fyrir Jack Clarke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham er búið að selja kantmanninn unga Jack Clarke til Sunderland sem leikur í Championship deildinni í haust.

Kaupverðið er óuppgefið en Sky greinir frá því að heildarupphæðin gæti náð 10 milljónum punda með árangurstengdum aukagreiðslum. Guardian segir Sunderland aðeins hafa borgað eina milljón punda fyrir Clarke og gæti sú upphæð tífaldast ef Sunderland og Clarke gera góða hluti.

Clarke er 21 árs gamall og var keyptur til Tottenham fyrir þremur árum eftir að hafa sýnt flotta takta með Leeds í Championship deildinni.

Clarke hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum með Tottenham og var lánaður til Sunderland í C-deildinni í janúar. Hann festi sig í sessi í byrjunarliðinu og hjálpaði félaginu að komast aftur upp í Championship.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.