Fotbolti.net
09.07.22 - 14:45
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Tottenham lánar Gollini til Fiorentina (Staðfest)

Pierluigi Gollini er búinn að gera eins árs lánssamning við Fiorentina

Pierluigi Gollini er búinn að gera eins árs lánssamning við Fiorentina

Canon

Mynd: Heimasíða Fiorentina

Pierluigi Gollini, markvörður Tottenham, mun spila með Fiorentina á láni út þessa leiktíð.
Gollini var keyptur til Tottenham frá Atalanta á síðasta ári en hann spilaði aðeins tíu leiki fyrir félagið á leiktíðinni.

Hann fékk ekki einn leik í ensku úrvalsdeildinni og var þá harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í undanúrslitum enska deildabikarsins í janúar er liðið tapaði fyrir Chelsea.

Gollini taldi það best að fara á láni frá Tottenham til að fá meiri spiltíma en hann mun spila með Fiorentina á komandi leiktíð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fiorentina í dag en Fraser Forster verður varamarkvörður fyrir Hugo Lloris hjá Tottenham.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.