Fotbolti.net
09.08.13 - 09:39
Magnús Már Einarsson

Björn Daníel í Viking (Staðfest)

Björn Daníel í Viking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Daníel Sverrisson, leikmaður FH, hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska félagið Viking.

Björn Daníel mun klára tímabilið með FH en hann mun síðan æfa með Viking í október til að kynnast liðsfélögum sínum.

Í janúar hefur hann síðan nýtt undirbúningstímabil með Viking fyrir næsta tímabil.
,,Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir hjá Viking. Þeir hafa fylgst með mér síðustu vikurnar. Viking er eitt af stærstu félögunum í Noregi og þetta er gott lið,\" sagði Björn Daníel á heimasíðu Viking.

,,Viking sýndi mikinn áhuga og það var mikilvægt. Ég veit að ég mun fá að spila ef ég legg hart að mér. Ég veit líka að Viking gengur vel í deildinni og þetta er stórt félag.\"

Indriði Sigurðson er fyrirliði Viking og leikur Jón Daði Böðvarsson með félaginu. Björn Daníel ræddi við Indriða fyrir félagaskiptin.

,,Hann hafði góða hluti að segja bæði um Viking og Stavanger og það átti stóran þátt í ákvörðuninni. Það er gott að það eru Íslendingar hjá félaginu sem geta hjálpað mér´i byrjun.\"

Heimild: Heimasíða Viking

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.